Skilmálar
Smátré ehf.
Kt. 670924-0840
VSK nr. 154436
Hagaflöt 14, Garðabæ
smatre@smatre.is
+354 845 1910
Skilmálar
- Öll verð eru birt með virðisaukaskatti.
- Allar pantanir eru afgreiddar innan sjö virkra daga nema annað sé tekið fram í vörulýsingu eða ef um sérpantanir er að ræða. Afgreiðslutími sérpantana er metinn fyrir hverja pöntun og gefinn upp með fyrirvara um breytingar.
- Allar persónuupplýsingar eru trúnaðarmál og verða ekki gefnar eða seldar þriðja aðila.
- Skilmálar þessir eru í samræmi við íslensk lög.
- Afpöntun verður að fara fram innan 24 klukkustunda frá pöntunum, eftir það bjóðum við ekki upp á endurgreiðslur. Eftir þann tíma bjóðum við upp á skipti eða inneign. Vara og umbúðir verða að vera í upprunalegu ástandi. Sendingarkostnaður vegna skipta er á kostnað viðskiptavinarins.
- Vöru má skipta innan 14 daga frá því að vara er afhent gegn framvísun pöntunarstaðfestingar.
- Sérpöntunum fæst ekki skipt né fást þær endurgreiddar, nema að vara uppfylli ekki óskir sem kaupandi setti fram við pöntun.
- Við skoðum allar vörur áður en við afhendum þær. Ef viðskiptavinur telur vöru gallaða skal hann umsvifalaust hafa samband, smatre@smatre.is, lýsa galla (með texta eða mynd) og við bregðumst við eftir bestu getu.
- Boðið er upp á sendingar innanlands með Dropp skv. gjaldskrá Drop. Ef viðskiptavinur óskar eftir sendingu utan þjónustusvæðis Dropp á Íslandi eða erlendis skal hafa samband gegnum smatre@smatre.is svo hægt sé að skoða sendingarmöguleika.
- Smátré ehf. áskilur sér rétt til að hætta við pantanir án fyrirvara, t.d. vegna rangra verðupplýsinga eða skorts á hráefni.